ójá...I've got my ticket
21.10.08
12.10.08
17.9.08
Kolbeinn Hrafn búinn að missa fyrstu tönnina!
24.6.08
Hellfest 2008
Þá er ég kominn til baka eftir rosalegasta festival sem ég hef nokkurn tíman farið á!! Ég á varla til orð til að lýsa þessu.
Veðrið var frábært allan tímann, frábært fólk og vangefið mikið af góðum böndum. Ég nenni ekki að útlista hvaða hljómsveitir stóðu uppúr, því fæstir vinir mínir og þeir fáu sem lesa þetta munu vita hvaða bönd það eru. Eina sem þið þurfið að vita var að ég hef ALDREI skemmt mér jafn vel!
Ég tók alveg fullt af myndum og þær eru hér.
Það er alveg gefið að þetta verður endurtekið á næsta ári.

18.6.08
28.4.08
Sveitasælan
25.4.08
GAS GAS GAS
http://www.youtube.com/watch?v=UTXpXesMcKE
Allt að verða snarbrjálað á íslandi! Riot og police brutality! YEAH!
20.4.08
Engin hjálparadekk!
Ég er ekki frá því að ég sé stoltasti pabbi í Danmörku í dag! Við fórum í heimsókn til Hönnu og Finns og þar var Baldur sonur þeirra nýbúinn að losa sig við hjálparadekkin og farinn að hjóla um allt eins og herforingi. Kolbeini fannst þetta að sjálfsögðu gríðartöff og ákvað að prófa...og viti menn. Í dag fórum við í hjólatúr og ég þarf greinilega að fara að hjóla með honum - því ég gat varla haldið í við hann á fæti! Ég er alveg að springa úr monti!
5.4.08
21.3.08
14.3.08
Vottaður!
10.3.08
Mammút
Hver andskotinn! Hef aldrei heyrt neitt í þessari hljómsveit nema eitthvað smá í sjónvarpinu þegar þau unnu músíktilraunir hér um árið. Ég las á netinu að það væri komið eitthvað nýtt lag á mæspeisið þeirra af væntanlegri plötu og þar voru allir að hrósa þessu í hástert. Ég ákvað því að gefa þessu séns og goddamn!! Alveg vangefið gott lag!
http://www.myspace.com/mammut og lagið heitir svefnsýkt! Mæli með þessu!

26.2.08
Nýjasta auglýsingaherferðin hjá Vestas
http://www.engadget.com/2008/02/26/danish-wind-turbine-eats-itself/
Þetta er svo magnað...jafnvel spurning um að fara að skoða betur hjá sér gæðaeftirlitið!
Fyrir þá sem ekki vita þá er Vestas danskt fyrirtæki sem framleiðir vindmyllur. Síðustu 3 mánuði hafa svipuð atvik verið að gerast í Svíþjóð, Englandi, Skotlandi og svo í Danmörku. Hægt er að lesa nánar um þetta flopperí hér:
http://politiken.dk/erhverv/article475355.ece
þakka bara mínum sæla fyrir að þeir séu ekki að framleiða flugvélahreyfla...

1.2.08
30.1.08
29.1.08
Kominn aftur til DK...death
Já ég skellti mér í góðu flippi til Íslands með Kolla litla til Íslands í smá heimsókn á fimmtudaginn. Planið var að hitta gamla og góða vini og anda að sér fersku fjallaloftinu...eða eitthvað þannig. Kolbeinn fékk að gista einn hjá afa sínum og fór svo Þorlákshafnar til ömmu sinnar og afa í 2 nætur meðan pabbinn var fullur í Reykjavík. Ansi góð skipti það.
Hey - maður má sko alveg nýta svona foreldra og ex-tengdaforeldra þegar maður býr í útlöndum...svo haldiði ykkur saman ef þið hafið eitthvað út á það að setja!
Anyhow....ég fór í Guitar Hero partý (ef partý skal kalla) hjá hlyn og daaaamn hvað þetta er rosalegt spil! Ég hefði krýnt mig meistarann í guitarhero ef gummi jóh hefði ekki verið með, en hann er einmitt búinn að æfa sig allar nætur síðan fyrir jól, þannig að hann hafði smá forskot á mig! En ég hét því að ég skyldi fjárfesta í þessu og æfa mig og þá mun ég gjörsamlega mala kvikindið!
Við Hlynur röltum svo í bæinn og það var alveg eiturhressandi! Hitti fullt af hressu fólki og meðal annars Stebba frænda sem ég hef ekki verið fullur með síðan....tja ... amk síðan Ómar Ragnarsson hafði hár!
Daginn eftir var afmæli hjá Jakob með öllum gömlu hljómsveitarvinunum. Frír bjór og allir í góðum gír. Ég setti inn fullt af myndum á myndasíðunna fyrir áhugasama.
Annars var þetta bara meiriháttar ferð í alla staði, en auðvitað allt, allt, ALLT of stutt. Enda held ég að heimþráin sé alveg á 11 núna. En ég lofaði sjálfum mér því að ég skyldi koma fljótlega aftur með vorinu og svei mér þá ef ég skal ekki standa við það! Svo verður nú sumarfríið tekið út á Íslandi líka.
Takk fyrir mig kæru vinir - það var æðislegt að hitta ykkur og ég sakna ykkar mikið! ÁFRAM ÍSLAND!

24.1.08
23.1.08
Ísland á morgun
Jahá! Á morgun mætum við feðgar eldhressir á land ísa! Við verðum á klakanum í 5 daga þannig að það er um að gera að vera snöggur að panta tíma ef áhugi er fyrir hendi að hittast!
Sjáumst!
Sjáumst!
22.1.08
Subscribe to:
Posts (Atom)

-724754.jpg)